Tekjur af erlendum ferðamönnum á fyrsta ársfjórðungi 2025 námu 108,5 milljörðum króna, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Það er aukning frá sama tímabili árið áður þegar tekjurnar voru 103,8 milljarðar króna. Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2024 til mars 2025 námu tekjurnar 623,8 milljörðum króna, samanborið við 612,9 milljarða króna á sama tímabili ári fyrr.
Þrátt fyrir auknar tekjur hefur störfum í einkennandi greinum ferðaþjónustu fækkað. Í apríl 2025 voru 29.741 starfandi í ferðaþjónustu, sem er um 1% samdráttur frá apríl 2024. Á tólf mánaða tímabili frá maí 2024 til apríl 2025 störfuðu að jafnaði 31.407 manns í ferðaþjónustu en voru 31.721 á sama tímabili árið á undan.
Gistinætur á hótelum í apríl 2025 voru 369.411, sem er 11% aukning frá apríl 2024 þegar þær voru 331.880.
Brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli voru alls 226.257 í maí 2025, samanborið við 210.872 í sama mánuði árið áður. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 159.384, lítil aukning frá maí 2024 þegar þeir voru 157.366.