Greiðslukortavelta Íslendinga jókst um 6,8% í maí miðað við sama mánuð í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Veltan innanlands hækkaði um 3,3%, en kortavelta erlendis jókst verulega eða um 20,9% og speglar hún metfjölda utanlandsferða.
Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá frá Landsbankanum, þar sem jafnframt er bent á að utanlandsferðum Íslendinga hafi fjölgað um 25% frá maí í fyrra. Frá áramótum hefur heildarfjöldi utanlandsferða aukist um 29% samanborið við sama tímabil í fyrra. Kortavelta erlendis endurspeglar bæði notkun korta í útlöndum og í erlendri netverslun.
Bent er á að þrátt fyrir hátt vaxtastig virðist meðalheimilið áfram hafa ráðrúm til neyslu. Kortavelta hefur aukist samfleytt milli ára í hverjum mánuði síðan í október 2023. Samkvæmt gögnum Seðlabankans jókst kortavelta um 5,5% á fyrstu fimm mánuðum ársins, á meðan einkaneysla jókst aðeins um 2,3% á fyrsta fjórðungi samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar.
Innlán heimila hafa einnig aukist og lítið virðist um yfirdrátt, sem bendir til að fjölmörg heimili búi við stöðugleika og geti viðhaldið eða aukið neyslu næstu misseri.