Markaðurinn í Japan skaðast

Yohei Kitayama stillir sér upp á þaki norræna skálans á …
Yohei Kitayama stillir sér upp á þaki norræna skálans á heimssýningunni í Osaka. mbl.is/Baldur Arnarson

Yohei Kitayama, sölustjóri Vinnslustöðvarinnar í Japan, segir það geta haft alvarleg áhrif fyrir loðnumarkaðinn í Japan ef það heldur áfram að verða lítið framboð af loðnu frá Íslandi. ViðskiptaMogginn ræddi við Yohei á heimssýningunni í Osaka í Japan.

Yohei segir almennan skort á framboði sjávarfangs frá Íslandi enda sé loðnan helsta varan sem fyrirtækið selji í Japan og í Asíu almennt. Síðustu tvær loðnuvertíðir á Íslandi hafi brugðist.

Loðnubresturinn segir til sín

Hann segir láta nærri að það hafi verið tveggja ára samfellt veiðibann á loðnu á Íslandi.

„Raunar sjáum við ákveðna hættu á að markaðurinn minnki vegna þess að það hefur ekki verið framboð (af loðnu) í svo langan tíma. Þannig að verðið er orðið sögulega hátt vegna skorts á vörunni. Og auðvitað fer svo að lokum að markaðurinn mun reyna að finna aðra valkosti ef það verður áfram lítið sem ekkert framboð í langan tíma.“

Norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka.
Norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka. mbl.is/Baldur Arnarson

 

Hafa hætt starfsemi

Þannig að skortur á loðnu gæti haft langtímaáhrif á markaðinn?

„Já, það tel ég.“

Þannig að það gæti veikt stöðu loðnu á japanska markaðnum í framtíðinni ef það er engin loðna í nokkur ár?

„Já. Því að ég veit að nokkur fyrirtæki sem voru í loðnuvinnslu hafa hætt starfsemi (eftir að síðustu tvær vertíðir brugðust á Íslandi) vegna þess að þau höfðu ekki hráefni.

Þannig að ef þetta heldur áfram munu fyrirtækin sem hafa verið háð framboði á loðnu frá Íslandi auðvitað ekki geta treyst á það lengur. Þannig að annaðhvort munu þau hætta starfsemi eða leita að öðrum valkostum. Ég hef því miklar áhyggjur af langtímaáhrifum þess að hafa ekkert framboð.“

Neyslan á niðurleið

Hver er almenn þróun í neyslu sjávarafurða í Japan?

„Almennt er neyslan á mann smám saman að minnka. Það eru nokkrar ástæður fyrir því. Ein er sú að verð á fiski er orðið mjög hátt miðað við það sem það var fyrir 30 árum. Þannig að neytendur eru að snúa sér meira að ódýrara próteini, eins og kjúklingi og eggjum, en auðvitað eru takmörk fyrir því hvað fólk getur borgað. Það er eitt.

Eftirspurn eftir sjávarafurðum í heiminum er á uppleið. Þess vegna sjáum við stöðuga hækkun á markaðsverði.“

Þannig að vöxtur í alþjóðlegri eftirspurn mun hækka verð? Þú nefndir líka að sjávarafurðir væru að verða of dýrar fyrir marga neytendur. Mun fjölgun neytenda í heiminum öllum vega á móti því?

„Já, ég held það.“

Og stuðla að verðhækkun?

„Til lengri tíma litið, já.“

Horfir til ársins 2030

Ertu að hugsa 20 ár fram í tímann?

„Já og nei. Er jafnvel að horfa fimm ár fram í tímann.“

Sem sagt til 2030?

„Já, það virðist vera óhjákvæmilegt (að verðið hækki), að mínu mati.“

Þannig að horft til framtíðar er úlitið bjart í sjávarafurðum?

„Hvað verðið varðar já en ég hef áhyggjur af framboðinu,“ segir Yohei Kitayama, sölustjóri Vinnslustöðvarinnar í Japan.

Ítarlega er fjallað um þátttöku Íslands á heimssýningunni í Osaka á miðopnu ViðskiptaMoggans í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »