Steinefna- og saltblöndur í duftformi sem blanda á í vatn hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarið. Varan Hydrate Me hefur vakið athygli seinustu vikur en varan, sem hefur hingað til aðeins verið fáanleg á netinu, seldist upp. Nú fer Hydrate Me í almenna dreifingu hjá Prís, 10/11 og Extra.
„Þetta hefur gengið vonum framar og ferlið hefur verið mjög skemmtilegt,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Ólafur Jóhann Steinsson, einn af frumkvöðlum verkefnisins.
Kollegi hans, Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, tekur í sama streng. „Lagerinn seldist upp á margfalt styttri tíma en við gerðum ráð fyrir. Auðvitað bjuggumst við alveg við góðum viðtökum, en þetta er framar öllum væntingum.“
Að sögn þeirra félaga hefur áherslan verið skýr frá upphafi: Að bjóða upp á einfalda og bragðgóða samsetningu af steinefnum, án viðbætts sykurs, sem hægt er að neyta daglega.
„Fólk kaupir vöruna okkar út af bragðinu, það er það fyrsta sem fólk segir við okkur,“ segir Ólafur. „Svo er sykurlaus samsetning líka stór plús, bæði fyrir íþróttafólk og þá sem vilja halda sér ferskum yfir daginn,“ bætir hann við.
Þeir Gústi B og Ólafur fylgja vörunni úr hlaði og standa vaktina í Prís á morgun. Þeir búast við miklu stuði og stemningu. „Við verðum í Prís núna á föstudaginn klukkan 15.30 og ætlum að bjóða fólki að smakka og svona,“ segir Gústi.