Herkastalinn seldur á 865 milljónir

Herkastalinn var byggður árið 1916.
Herkastalinn var byggður árið 1916. mbl.is/Árni Sæberg

Fasteignafélagið Bergey hefur fest kaup á Herkastalanum við Kirkjustræti 2. Bergey keypti Herkastalann á uppboði á 865 milljónir króna.

„Herkastalinn er án efa ein fallegasta bygging Reykjavíkur og á sér merkilega sögu,“ segir Magnús Berg Magnússon stjórnarformaður Bergeyjar í tilkynningu.

Í samtali við blaðamann Morgunblaðsins segir hann mikil tækifæri felast í húsinu og staðsetningu þess. „Það á skilið að vera með góðan og skemmtilegan rekstur.“

Herkastalinn var byggður árið 1916 en árið 1929 var tveimur hæðum bætt við. Húsið er nú þriggja hæða auk kjallara og rishæðar.

Undanfarin ár hefur Herkastalinn verið rekinn sem gistiheimili með 54 herbergjum. Bergey hefur þegar samið við rekstraraðila sem munu taka við rekstrinum. „Þetta eru mjög reyndir aðilar í gistihúsarekstri í Reykjavík,“ segir Magnús.

„Við ætlum að gefa okkur smátíma núna til að teikna upp hótel. Þannig að þessu verður breytt úr gistiheimili í hótel á næstu árum,“ segir Magnús. Hann segir enga tímalínu komna á framkvæmdirnar en farið verði í miklar endurbætur á húsinu að innan. Herkastalinn er friðaður að utan. Einhver ár séu í að framkvæmdir hefjist.

„Bergey hefur vaxið hratt undanfarið og við höfum meðal annars keypt nokkur sögufræg hús í borginni,“ segir Magnús.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »