Aftur eykur OPEC olíuframleiðslu

Olíuvinnslustöð í Bagdad við sólsetur. Lækkað olíuverð ætti að koma …
Olíuvinnslustöð í Bagdad við sólsetur. Lækkað olíuverð ætti að koma sér vel fyrir heimshagkerfið og m.a. draga úr verðbólguþrýstingi. AFP/Ahmad Al-Rubaye

Greinin birtist upphaflega í Morgunblaðinu 2. júní.

Fulltrúar átta þjóða sem leiða OPEC+ samstarfið sammæltust um það á fundi á laugardag að auka olíuframleiðslu sína um 411.000 föt á dag.

Alls eiga tólf lönd aðild að OPEC, Samtökum olíuútflutningsríkja, en að auki hafa 11 lönd til viðbótar starfað með samtökunum frá árinu 2016, undir merkjum OPEC+, og framleiðir OPEC+ hópurinn samanlagt rúmlega 40% af allri hráolíu í heiminum.

Aukningin sem samþykkt var um helgina verður komin að fullu fram í júlí, en þetta er í þriðja sinn á jafnmörgum mánuðum sem hópurinn ákveður að auka olíuframboð. Með viðbót helgarinnar nemur aukningin frá apríl til júlí um 1,4 milljónum fata á dag. Raunveruleg framboðsaukning kann þó að vera nokkru lægri, þar eð sum OPEC+ ríki höfðu þegar aukið framleiðslu sína umfram þann kvóta sem hafði verið ráðstafað til þeirra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »