Gervigreindin mun fækka skrifstofufólki

Forstjóri Anthropic, Dario Amodei, vörustjóri Mike Krieger og samskiptastjóri Sasha …
Forstjóri Anthropic, Dario Amodei, vörustjóri Mike Krieger og samskiptastjóri Sasha de Marigny héldu blaðamannafund á fyrstu þróunarráðstefnu Anthropic í San Francisco í Kaliforníu þann 22. maí 2025. AFP/Julie Jammot

Dario Amodei, forstjóri bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic, spáir því að tæknin sem hann og aðrir eru að þróa kunni að útrýma um helmingi allra þeirra starfa sem unnin eru á skrifstofum í dag og það innan örfárra ára. Þetta sagði hann í viðtali í vikunni og greint var frá í CNN.

Amodei hefur þó ekki lagt fram nein gögn eða rannsóknir sem styðja þessa spá hans. Margir hafa gagnrýnt síendurtekið tal um að gervigreindin muni á einhvern hátt gera heiminn betri og fækka störfum en að sama skapi umturna honum áður.

Gagnrýnendur benda sömuleiðis á að Amodei, sem nýverið kynnti nýja útgáfu af gervigreindarbúnaði Anthropic, muni sjálfur hagnast hvað mest á þessari umbyltingu. Spá hans sé því fremur auglýsing en varnarorð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »