GeoSilica hefst handa á Þeistareykjum

Ríkarður S. Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun, Fida …
Ríkarður S. Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun, Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica og Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun, undirrita samstarfssamning fyrirtækjanna. Ljósmynd/Aðsend

GeoSilica mun hefja starfsemi á Þeistareykjum haustið 2025 eða sumarið 2026. Fyrirtækið hefur gert samning við Landsvirkjun um leigu á húsnæði og afhendingu auðlindastrauma frá jarðvarmavinnslu Þeistareykjastöðvar. Samningurinn var undirritaður 27. maí og markar upphaf formlegrar fjölnýtingar á svæðinu, samkvæmt tilkynningu frá Landsvirkjun.

Nýta kís­il til fram­leiðslu á nátt­úru­leg­um fæðubót­ar­efn­um

GeoSilica var stofnað árið 2012 og sérhæfir sig í framleiðslu náttúrulegra fæðubótarefna í vökvaformi. Fyrirtækið vinnur kísil úr jarðhitavökva og umbreytir honum í 100% náttúruleg og vegan-vottuð steinefni. Kísillinn verður framvegis unninn beint úr jarðvarmavökva frá Þeistareykjastöð.

„Fyrir okkur hjá GeoSilica er þetta stærri áfangi en margir gera sér grein fyrir,“ segir Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica. „Þegar við hófum starfsemi var framtíðarsýnin skýr — að þróa sjálfbæra tækni sem nýtir íslenskar auðlindir án eiturefna, án sóunar og með virðingu fyrir náttúrunni. Nú er sá draumur að verða að veruleika.“

Þeistareyk­ir eru staðsett­ir á Reykja­heiði norðan Mý­vatns og hafa fram að þessu verið eyðijörð.

Á svokallaðri fjölnýtingarlóð Landsvirkjunar, staðsettri milli skiljustöðvar og aflstöðvar, hefur verið reist sérhæft hús sem GeoSilica mun leigja. Þar mun fyrirtækið fá aðgang að auðlindastraumum beint frá orkuvinnslu, sem styður við aukna nýtingu og vistvæna framleiðslu.

„Við erum afar ánægð að fá GeoSilica til okkar á Þeistareykjasvæðið,“ segir Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun. „Starfsemi GeoSilica styður við bætta nýtingu auðlindastrauma Þeistareykjasvæðisins og mun leggja sterkan grunn að fjölnýtingu á svæðinu til framtíðar. Enn fremur leggur GeoSilica áherslu á ríkan stuðning við nærsamfélagið, sem rímar vel við þær áherslur okkar hjá Landsvirkjun að vera góður granni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »