Umræðan um svokallað „gigg-hagkerfi“ og verktakavinnu verður sífellt háværari. Eitt af þeim fyrirtækjum sem nýtt hafa sér þetta fyrirkomulag er heimsendingarþjónustufyrirtækið Wolt. Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar Wolt, er nýjasti gestur í viðskiptahluta Dagmála sem sýndur er á mbl.is.
Spurður hvort einhverjar nýjungar séu á döfinni hjá Wolt segir Jóhann að fyrirtækið stefni á að fara út í lánaþjónustu.
„Við köllum þessa vöru Wolt Capital, en oft er erfitt fyrir minni veitingastaði að fá fyrirgreiðslu í bönkum. Við getum nú núna boðið veitingastöðum lán upp á allt að sex milljónir, til dæmis til að endurnýja tækjabúnað, fara í markaðsherferð eða eitthvað slíkt, sem er þá bara greitt í gegnum samninginn við Wolt á ákveðnu tímabili og við lofum betri vöxtum en hjá bönkunum,“ segir Jóhann.
Spurður hvort Wolt hafi látið reyna á þessa vöru erlendis segir Jóhann svo vera.
„Við erum með þetta í Finnlandi og á tveimur öðrum mörkuðum. Það hefur gengið vel og erum við að svara ákveðnu kalli með því að bjóða upp á þessa fjármögnun hér,“ segir hann.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: