Sæbýli lýkur 500 milljóna hlutafjáraukningu

Forstjóri Sæbýlis hf., Vala Valþórsdóttir og stjórnarformaður, Sigurður Pétursson.
Forstjóri Sæbýlis hf., Vala Valþórsdóttir og stjórnarformaður, Sigurður Pétursson. Ljósmynd/Aðsend

Sæbýli hf. hefur lokið 500 milljóna króna hlutafjáraukningu sem styður við næstu skref í uppbyggingu félagsins í Grindavík og í Auðlindagarðinum á Reykjanesi. Með fjármögnuninni færir fyrirtækið sig úr þróunarstigi yfir í framleiðslufasa á sjálfbærri ræktun sæeyrna („abalone“), sem ætlað er á alþjóðamarkaði.

„Við erum afar þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna verkefninu. Þetta markar stór tímamót þar sem við færumst úr þróunarfasa yfir í fullan framleiðslufasa. Framtíðin er björt, við erum með frábært starfsfólk sem hefur komið verkefninu á þennan sterka stað og nú förum við alla leið. Við sjáum nú ávexti margra ára vinnu í rannsóknum og uppbyggingu,” er haft eftir Völu Valþórsdóttur, forstjóra, í tilkynningu.

Sæbýli stefnir að framleiðslu á allt að 200 tonnum á næstu árum með stefnu á frekari stækkun í yfir 1.000 tonn. Félagið nýtir jarðvarma og hraunsíaðan sjó úr borholum til ræktunar í lokuðu, stýrðu umhverfi. Ungviðið sem nú er í framleiðslu verður tilbúið til afurðasölu árið 2028.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »