Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur valið Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, sem Hagfræðing ársins 2025.
Í rökstuðningi félagsins segir að Ásdís hafi leitt umfangsmiklar og markvissar breytingar í Kópavogi frá því hún tók við embætti árið 2022. Þar ber helst að nefna nýtt skipulag í leikskólamálum, hagræðingu í rekstri og lækkun fasteignagjalda sem nemur tæpum milljarði króna, ávinning sem kemur bæði bænum og íbúum til góða.
„Ásdís hefur sýnt hugrekki í ákvarðanatöku og festu í framkvæmd. Hún hefur lagt áherslu á gagnsæi og ábyrgð, meðal annars með því að breyta kjörum kjörinna fulltrúa og leggja áherslu á skynsamlega nýtingu fjármuna,“ segir í tilkynningu stjórnar félagsins.
Áður en hún tók við sem bæjarstjóri starfaði Ásdís m.a. sem forstöðumaður efnahagssviðs og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
„Hagfræðin snýst um að hafa áhrif á málefni sem snerta daglegt líf,“ er haft eftir Ásdísi í tilkynningu. „Ég er þakklát fyrir traustið og tækifærið til að þjóna samfélaginu og vonast til að breytingarnar sem við höfum ráðist í nýtist til góðs til framtíðar.“
Félagið segir Ásdísi vera fyrirmynd fyrir þá sem starfa í opinberri þjónustu og ungt fólk sem horfir til framtíðar.