Ingibjörg nýr formaður FKA

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, Jasmina Vajzovic Crnac, Ingibjörg Salóme, Þórey Hafliðadóttir. …
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, Jasmina Vajzovic Crnac, Ingibjörg Salóme, Þórey Hafliðadóttir. Neðri röð: Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir, Margrét Hannesdóttir og Þuríður Aradóttir Braun. Rósu Viggósdóttur vantar á myndina. Ljósmynd/Aðsend

Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, hundaræktandi & eigandi Gæludýr.is og Home&you var kjörin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA á aðalfundi félagsins. Frá þessu er greint í tilkynningu frá FKA.

Aðalfundur Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA var haldinn fimmtudaginn 22. maí 2025 í Húsi atvinnulífsins. Ingibjörg var kjörin formaður FKA með 37.95% atkvæða.

„Ég hef langa og veigamikla reynslu af íslensku atvinnulífi, bæði sem stjórnandi á almennummarkaði en einnig sem fyrirtækjaeigandi. Ég hef stofnað og byggt upp frá grunni tvö fyrirtæki, Gæludýr.is og Petmark ehf, heildverslun, en auk þess á ég og rek home&you, sem er einstaklega falleg gjafavöruverslun í Smáralind. Ég tel að fjölbreytt reynsla mín af íslensku atvinnulífi muni nýtast mér vel í hlutverki formanns FKA,“ er haft eftir Ingibjörgu Salóme í tilkynningu.

Í stjórnendahópinn bættust við nýjar konur og á fundi nýkjörinnar stjórnar í framhaldi af aðalfundi var kosið í hlutverk varaformanns, ritara og gjaldkera og voru þær Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir varaformaður, Margrét Hannesdóttir gjaldkeri og Rósa Viggósdóttir ritari kjörnar í þau hlutverk félagsins.

Alls ellefu konur buðu sig fram til stjórnar. Fjórar konur voru í framboði til formanns.

Fjölmargir viðburðir eru hjá FKA á hverju starfsári og byrjað er að skipuleggja haustið. Opnunarviðburður FKA verður hjá Árvakri þann 3. september næstkomandi.

Þær stjórnarkonur sem sitja í stjórn FKA-Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA starfsárið 2025-2026 eru eftirfarandi:

  • Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, hundaræktandi & eigandi Gæludýr.is og Home&you / formaður
  • Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir - Eigandi hugbúnaðarfyrirtækisins GET Ráðgjöf ehf. / varaformaður
  • Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir - Stjórnandi, ráðgjafi og stjórnarkona.
  • Margrét Hannesdóttir - Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja og óperusöngkona / gjaldkeri. (aðalstjórn til eins árs)
  • Rósa Viggósdóttir - Stjórnandi / Ritari
  • Þórey Hafliðadóttir - Margmiðlunarhönnuður og eigandi Helvítis ehf. (aðalstjórn til eins árs)
  • Þuríður Aradóttir Braun - Forstöðukona markaðsstofu Reykjaness, ferðamálafræðingur og MBA
  • Jasmina Vajzovic Crnac - Eigandi IZO Ráðgjöf og verkefnastjóri Viðnámsþróttar Suðurnesja (varakona til eins árs)
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »