Einar ráðinn framkvæmdastjóri SVEIT

Einar Bárðarson.
Einar Bárðarson. Ljósmynd/SVEIT

Stjórn SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, hefur ráðið Einar Bárðarson í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur formlega við starfinu 1. júní næstkomandi af Aðalgeiri Ásvaldssyni, sem hefur gegnt embættinu frá stofnun samtakanna árið 2021. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SVEIT en Aðalgeir tilkynnti um brotthvarf sitt í vor og í kjölfarið var hafin leit að nýjum framkvæmdastjóra.

Einar Bárðarson er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og stefnumótun. Hann gegndi síðast starfi framkvæmdastjóra Votlendissjóðsins, en hefur einnig starfað sem sjálfstæður ráðgjafi í stjórnunar- og markaðsmálum um árabil. 

Meðal verkefna hans síðustu ár eru stjórnarformennska Tónlistarmiðstöðvar Íslands og ráðgjöf fyrir Klúbb matreiðslumeistara og Íslenska kokkalandsliðið.

SVEIT eru hagsmunasamtök fyrirtækja á veitingamarkaði og starfa að því að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum, efla fagmennsku innan greinarinnar og miðla upplýsingum um málefni veitingageirans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »