Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að 0,25 prósentustiga stýrivaxtalækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í gær geri það að verkum að aðhaldsstigið minnki lítillega. Fram kom á fundi peningastefnunefndar í gær að stjórnendur Seðlabankans teldu raunvaxtastigið nú vera í kringum 3,5% en á marsfundi nefndarinnar var talað um raunvexti nærri 4%.
Stýrivextir eru nú 7,5% og lækkuðu úr 7,75%. Íslandsbanki og Landsbankinn spáðu óbreyttum stýrivöxtum en Arion banki og IFS greining spáðu 25 punkta lækkun.
„Í öllu falli telja þau raunvaxtastigið vera í lægri kanti þess sem dugir til að koma verðbólgu í markmið,“ segir Jón Bjarki í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að það sé óvenjulegt að saman fari vaxtalækkun og jafn harður tónn og sleginn er í yfirlýsingunni nú. Kveðið er fast að orði um að frekari stýrivaxtalækkun verði aðeins ef verðbólga hjaðnar áfram á komandi fjórðungum. Miðað við verðbólguspá Seðlabankans sjálfs verða því vextir ekki lækkaðir frekar á þessu ári nema bankinn víki frá þessu skilyrði.
„Í ljósi mikillar óvissu um horfur komandi mánaða, bæði hvað varðar framgang tollastríðs á alþjóðavísu og þess hvernig bókunarstaða fyrir haustið og veturinn mun þróast hjá ferðaþjónustunni, hefði að mínu mati verið heppilegra að staldra við nú og slá í staðinn mildari tón í framsýnu leiðsögninni,“ segir Jón Bjarki.