Hjördís Þórhallsdóttir hefur verið ráðin þjónustustjóri hjá hátæknigagnaveri atNorth á Akureyri. Hún hefur störf í júní og verður hlutverk hennar meðal annars að tryggja farsæla innleiðingu nýrra viðskiptavina og halda uppi háu þjónustustigi gagnaversins, sem nú stendur í mikilli uppbyggingu.
Fram kemur í tilkynningu frá atNorth að ráðning Hjördísar falli vel að þörf fyrirtækisins fyrir aukinn mannafla og öfluga þjónustu í kjölfar stækkunar gagnaversins á Akureyri. Gert er ráð fyrir að 25 starfsmenn verði við störf í gagnaverinu í sumar og fjölgi svo enn á næstu misserum.
Hjördís hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi. Hún starfaði sem flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli og umdæmisstjóri hjá Isavia frá 2012 til 2024. Áður gegndi hún meðal annars stöðu deildarstjóra hjá Vegagerðinni og starfaði í þróunardeild Össurar.
Hún lauk B.Sc. gráðu í vöruhönnunarverkfræði frá Háskólanum í Skövde í Svíþjóð árið 1998 og meistaragráðu í Engineering Product Design frá South Bank University í Lundúnum árið 1999.
„Ég er afskaplega spennt að hefja störf í jafnspennandi og kvikum geira og gagnaversiðnaðurinn er og hlakka mjög til þess að taka til hendinni í gagnaveri atNorth hér á Akureyri,“ segir Hjördís í tilkynningu. „Það verður gaman að byggja á fyrri reynslu í starfsemi þar sem fjárfestingartölur hlaupa á milljörðum og umfangið fer ört vaxandi.“
atNorth er norrænt gagnaversfyrirtæki með höfuðstöðvar í Hafnarfirði. Fyrirtækið rekur þrjú gagnaver á Íslandi og fimm til viðbótar á Norðurlöndum. Gagnaverin eru knúin endurnýjanlegri orku og nýta sér kaldar aðstæður norðurslóða til að ná fram betri orkunýtingu. Fyrirtækið hefur einnig eflt þjónustu sína í háhraðatölvun og gervigreind með kaupum á sænska fyrirtækinu Gompute árið 2023.
Stækkun gagnavers atNorth á Akureyri nemur 12 til 13 milljörðum króna í beinni fjárfestingu og fjárfesting viðskiptavina í búnaði nálgast 100 milljarða. Auk gagnaversins á Akureyri er einnig unnið að stækkun í Reykjanesbæ og opnun tveggja nýrra gagnavera í Danmörku og Finnlandi á þessu ári. Ellefta gagnaver fyrirtækisins er í byggingu í Ølgod í Danmörku.