Nýjasta ofurtölva Nvidia, DGX Spark sem kynnt verður á Computex 2025 í Taívan á morgun, er væntanleg til Íslands í sumar og verður í boði hjá Advania. Þessi öfluga tölva er smá í sniðum en stór í afli.
DGX Spark er knúin af GB10 Grace Blackwell-ofurflögunni og skilar allt að 1.000 AI TOPS af reiknigetu með FP4-nákvæmni. Hún er búin 128 GB af samræmdu LPDDR5x-vinnsluminni og getur unnið með gervigreindarlíkön með allt að 200 milljarða breytistærðum. Með Nvidia AI-hugbúnaðarpakkanum fyrir fram uppsettum gerir hún þróun, fínstillingu og útfærslu flókinna AI-líkana mögulega.
Þórður Jensson, forstöðumaður innviðalausna hjá Advania, segir að tölvan muni umbylta gervigreindarvinnslu hér á landi. „Í stuttu máli þýðir það að gervigreindarvinnsla og -þróun, sem áður þurfti að fara fram í stórum gagnaverum, getur átt sér stað í tölvunni sjálfri, sem er á stærð við ósköp venjulegt nestisbox,“ segir Þórður.
DGX Spark er einnig með ConnectX-7-netkorti, sem gerir mögulegt að tengja saman tvær vélar og vinna með líkön með allt að 405 milljarða breytistærðum. Þetta opnar á möguleika fyrir íslensk fyrirtæki, rannsóknaraðila og stofnanir að nýta sér háþróaða gervigreindartækni án þess að þurfa að treysta á erlend gagnaver.
Advania, sem er Elite-samstarfsaðili Nvidia á Íslandi, hefur tryggt sér nokkrar vélar sem verða fáanlegar síðar í sumar. Með tilkomu DGX Spark má ætla að gervigreindarþróun verði mun aðgengilegri og skilvirkari fyrir íslenskt atvinnulíf og rannsóknarsamfélag.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.