Landsréttur staðfesti í dag frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á máli sem Samskip höfðuðu í apríl 2024 gegn Eimskip og forstjóra þess, Vilhelmi Má Þorsteinssyni.
Samskip gerði kröfu um viðurkenningu á bótaskyldu án fjárhæðar vegna meintra ólögmætra og saknæmra athafna í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitsins árið 2021.
Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til Kauphallarinnar.
Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms að ekki hafi verið tímabært að taka fyrir stefnu Samskipa gegn forsvarsmönnum Eimskipa.
Samskip stefndi Eimskip fyrir rangar sakargiftir, eftir bæði félög höfðu verið til rannsóknar vegna meintra samkeppnsbrota í tæpan áratug hjá Samkeppniseftirlitinu. Sáttin sem Eimskip gerði við eftirlitið fól í sér viðkenningu á hluta brotanna og greiðslu á 1,5 milljarða króna stjórnvaldsektar.
Rannsókn eftirlitsins á meintum brotum Samskipa hélt hins vegar áfram og lauk með að félagið var sl. haust sektað um 4,2 milljarða króna. Samkeppinseftirlitið byggði niðurstöðuna að stórum hluta á sátt Eimskips við eftirlitið tveimur árum áður.