Ekkert gengur í þjálfaraleit New York

New York Knicks fékk ekki leyfi til að ræða við …
New York Knicks fékk ekki leyfi til að ræða við Jason Kidd, þjálfara Dallas Mavericks. AFP/Sam Hodde

Bandaríska körfuknattleiksfélagið New York Knicks leitar nú í óða önn að nýjum þjálfara eftir að hafa nýverið vikið Tom Thibodeau frá störfum. Hingað til hefur leitin gengið erfiðlega.

ESPN greinir frá því að forráðamenn New York hafi óskað eftir því við Dallas Mavericks að fá að ræða við Jason Kidd, þjálfara liðsins, en fengið þvert nei.

Kidd er ekki sá eini á blaði hjá New York því liðið óskaði sömuleiðis eftir því að fá að ræða við Ime Udoka, þjálfara Houston Rockets. Þeirri beiðni var sömuleiðis hafnað.

Ekki nóg með þá fór félagið einnig þess á leit við Minnesota Timberwolves að fá að ræða við þjálfara þess Chris Finch en fékk einu sinni sem áður þvert nei.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »