Fyrirliðinn Halldór Garðar Hermannsson og Hilmar Pétursson hafa framlengt samninga sína við Keflavík í úrvalsdeild karla í körfubolta.
Halldór Garðar, sem er 28 ára bakvörður, gekk til liðs við Keflavík árið 2021 frá Þór í Þorlákshöfn. Hann er lykilmaður hjá Keflavík en hann skoraði 10 stig, gaf 2,6 stoðsendingar og tók 2,3 fráköst að meðaltali í leik á síðasta tímabili.
Hinn 25 ára gamli Hilmar kom til Keflavíkur í fyrra eftir tvö tímabil með Baskets Munster í næstefstu deild Þýskalands.
„Það er afar ánægjulegt að ná samningum við Halldór og Hilmar. Halldór hefur verið burðarás í liðinu og Hilmar er leikmaður sem við höfum mikla trú á að geti tekið stórt skref fram á við með okkur,“ segir Magnús Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, í tilkynningu frá félaginu.