Benedikt hættur hjá Tindastóli

Benedikt Guðmundsson.
Benedikt Guðmundsson. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Benedikt Guðmundsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfubolta. 

Þetta tilkynnti félagið í kvöld en Benedikt tók við liðinu fyrir nýliðið tímabil og gerði það að deildarmeistara.

Tindastóll komst síðan í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins en tapaði í oddaleik fyrir Stjörnunni sem varð Íslandsmeistari. 

Samkvæmt félaginu er ákvörðunin sameiginleg. 

Benedikt er þaulreyndur þjálfari sem gerði karlalið KR að Íslandsmeisturum árin 2007 og 2009 og kvennaliðið á Íslandsmeistara árið 2010. 

Hann hefur einnig þjálfað Njarðvík, Grindavík, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn á þjálfaraferlinum. 

Þá stýrði hann kvennalandsliðinu í sex ár en lét af störfum fyrr á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »