Körfuknattleikskonan Helena Rafnsdóttir hefur samið við bikarmeistara Njarðvíkur um að leika með liðinu á næsta tímabili.
Helena hefur undanfarin ár leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með North Florida en snýr nú aftur til uppeldisfélagsins eftir þriggja ára dvöl vestanhafs.
Hún var í stóru hlutverki hjá Njarðvík síðast þegar hún lék með liðinu tímabilið 2021-22, sem var hennar fjórða tímabil með liðinu. Þá varð Helena Íslandsmeistari með Njarðvíkurliðinu.