Stjarnan vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfubolta í kvöld. Karlalið Stjörnunnar lagði Tindastól í hreinum úrslitaleik í Síkinu á Sauðárkróki. Leiknum lauk 82:77 eftir að Tindastóll hafði verið yfir stærsta hluta leiksins. Hvort lið hafði unnið tvo leiki og allir leikirnir unnust á heimavelli. Heimavöllur Tindastóls dugði ekki í kvöld þrátt fyrir brjálaðan stuðning Skagfirðinga og nærsveitunga.
Það voru heimamenn í Tindastól sem byrjuðu leikinn betur og þeir tóku forustuna strax. Leiddu þeir svo leikinn nánast allan fyrsta leikhlutann þrátt fyrir flumbrugang og marga tapaða bolta. Góð hittni fyrir utan þriggja stiga línuna var aðalsmerki Stólanna. Stjarnan keyrði meira undir körfuna og gott samspil skilaði þeim oft auðveldum körfum. Tindastóll náði mest sjö stiga forskoti í leikhlutanum en staðan var 24:23 eftir fyrsta leikhlutann.
Fyrstu mínúturnar í öðrum leikhluta voru hnífjafnar en Stjarnan komst yfir á kafla. Mætti þá ekki Sigtryggur Arnar aftur á vettvang en hann var strax kominn í vesen með villur í fyrsta leikhlutanum. Innkoma Sigtryggs Arnars gjörbreytti leiknum og Stólarnir sigldu fram úr á ný. Sigtryggur Arnar skoraði ellefu stig á augabragði en Hilmar Smári Henningsson sá um að svara fyrir Stjörnuna en hann var allt í öllu hjá þeim í öðrum leikhlutanum. Tindastóll leiddi 48:40 í hálfleik.
Stigahæstir í hálfleik voru Sigtryggur Arnar með 14 stig, Hilmar Smári með 12 og Giannis Agravanis með 11.
Þriðji leikhlutinn var að mestu í höndum heimamanna. Þeir náðu góðum kafla og komust mest 11 stigum yfir. Vítin fóru mörg í súginn og það gaf Stjörnunni færi á að svara fyrir sig. Stjörnumenn sendu Júlíus Orra Ágústsson á vettvang og malaði hann gull fyrir Garðbæinga. Hann var allsráðandi á vellinum um stund og á meðan minnkaði Stjarnan muninn. Staðan var 69:64 fyrir lokaleikhlutann.
Þar var það Stjarnan sem kom sterkari til leiks. Vörn gestanna var frábær og allt erfitt fyrir Tindastólsmenn. Þeir skoruðu lítið og á meðan settist Stjarnan í bílstjórasætið. Hlynur Bæringsson jafnaði leikinn í 69:69 og svo kom góður kafli sem skilaði Stjörnunni í 77:74. Jase Febres setti svo þrist fyrir Stjörnuna þegar 1:39 var eftir og staðan þá orðin 80:75.
Tindastóll gat ekki brúað þetta bil þrátt fyrir að hafa náð að stela þremur boltum á lokamínútunni. Var við hæfi að Shaquille Rombley lokaði leiknum með troðslu. Lokatölur urðu 82:77 fyrir Stjörnuna og var fögnuður þeirra mikill í leikslok. Hvergi var fögnuðurinn þó meiri en hjá Hlyni Bæringssyni sem lauk ferlinum með langþráðum titli með Stjörnumönnum.
Þvílíkt kvöld og þvílíkur leikur hjá liðunum. Stjarnan vann þetta verðskuldað. Garðbæingar voru með kaldari haus, þeir voru hugaðri og spiluðu mun betur úr sínum spilum.
Mikil spenna var í loftinu í dag á Sauðárkróki. Veðrið lék við bæjarbúa og hófst dagskrá fyrir stuðningsfólk beggja liða þremur tímum fyrir leik. Áhorfendum var hleypt inn í húsið klukkutíma fyrir leik og var sungið og trallað næstu þrjá tímana.