„Ég er bara ekki nógu góður, ég er stressaður,“ sagði skemmtikrafturinn og fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal í samtali við mbl.is á Sauðárkróki í dag.
Auðunn er harður stuðningsmaður Tindastóls, sem mætir Stjörnunni í oddaleik í úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta á heimavelli klukkan 20.
„Það er 19 stiga hiti á Króknum og þetta lítur vel út,“ sagði Auðunn. „Ef ég ætti að ljúga að þér þá myndi ég segja þér að þetta væri alltaf svona á Króknum,“ bætti hann kíminn við.
„Það verður veisla fyrir leik og ef Stólarnir vinna verður þetta veisla eftir leik líka. Þetta er sterkasti heimavöllur landsins, það er 100 prósent þannig.
Það er enginn sem fylgist með íslenskum körfubolta sem er ósammála því. Við höfum hins vegar tapað stórum leikjum áður í þessu húsi,“ sagði Auðunn, sem verður svo sannarlega klár í slaginn í stúkunni.
„Leikmenn eru væntanlega tilbúnir og ég get lofað þér því að stuðningsmenn eru tilbúnir. Þessi úrslitakeppni er einhver besta auglýsing sem íslenskur körfubolti getur fengið. Maður lá fastur yfir öllum þessum seríum. Það væri fullkomið að enda þetta með titli í kvöld,“ sagði hann.
Auðunn er einnig harður stuðningsmaður Manchester United, sem spilar úrslitaleik við Tottenham í Evrópudeildinni í kvöld.
„Það eru tvö lið sem hafa alvöru áhrif á skapið mitt. Það er Tindastóll í körfunni og United í fótbolta. Það hefði verið gaman að vera í bænum að fylgjast með United en vonandi vinna bæði lið. Þetta verður annað hvort einn besti dagur ævi minnar eða einn sá versti,“ sagði Auðunn.