Stjarnan tryggði sér oddaleik í úrslitaeinvígi sínu við Tindastól á Íslandsmóti karla í körfubolta með heimasigri, 91:86, í fjórða leik í kvöld. Oddaleikurinn fer fram í Skagafirði næstkomandi miðvikudagskvöld.
Tindastóll byrjaði með látum og var kominn með tíu stiga forskot eftir tæpar þrjár mínútur, 11:1. Tindastóll var með völdin eftir það og náði mest 14 stiga forskoti í stöðunni 19:5.
Gestirnir voru með góð svör við öllu sem Stjörnumenn reyndu og var staðan eftir fyrsta leikhluta 32:19. Munurinn hélst svipaður allan annan leikhluta og voru hálfleikstölur 56:44.
Stjarnan byrjaði seinni hálfleikinn betur og minnkaði muninn í fimm stig, 59:64, þegar þriðji leikhluti var hálfnaður.
Munurinn var svo þrjú stig þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum, 73:70. Jase Febres jafnaði í kjölfarið í 73:73, sem var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Stefndi því allt í æsispennandi lokakafla.
Stjarnan komst yfir í fyrsta skipti í stöðunni 76:75. Tindastóll svaraði og komst þremur stigum yfir skömmu síðar, 79:76. Liðin skiptust á að skora eftir það og var Stjarnan með 87:86-forskot þegar 1:06 voru eftir og Tindastóll tók leikhlé.
Leikhléið gekk ekki betur en svo að Stjarnan var komin fimm stigum yfir skömmu síðar, 91:86. Voru þá 15 sekúndur eftir og Tindastóll tók annað leikhlé. Það skilaði litlu og Stjarnan sigldi sætum sigri í höfn.