Söðlar um í Danmörku

Jón Ísak Halldórsson er genginn til liðs við Lemvig að …
Jón Ísak Halldórsson er genginn til liðs við Lemvig að nýju. Ljósmynd/Lemvig-Thyborøn Håndbold

Handknattleiksmaðurinn Jón Ísak Halldórsson er genginn til liðs við Lemvig í Danmörku, sem leikur í B-deild. Kemur hann frá úrvalsdeildarliði Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar.

Handbolti.is vekur athygli á því að Jón Ísak, sem er 19 ára vinstri skytta og leikstjórnandi, hafi skipt um félag á Jótlandi en hann lék með Lemvig í yngri flokkunum.

Jón Ísak kom nokkrum sinnum við sögu hjá aðalliði Holstebro á nýafstöðnu tímabili og hefur æft með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »