Hefði viljað gera meira

Arnór Viðarsson á fleygiferð í leik með Bergischer í þýsku …
Arnór Viðarsson á fleygiferð í leik með Bergischer í þýsku B-deildinni á keppnistímabilinu en hann snýr aftur til Danmerkur í sumar. Ljósmynd/Bergischer

Handboltamaðurinn Arnór Viðarsson átti viðburðaríkt fyrsta tímabil í atvinnumennsku, en hann gekk til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið Fredericia síðasta sumar frá uppeldisfélagi sínu ÍBV.

Arnór, sem er 23 ára gamall, hafði verið í lykilhlutverki hjá Eyjamönnum á síðustu árum en Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari Fredericia, fékk Arnór til Danmerkur síðasta sumar.

Hann eyddi fyrri hluta tímabilsins hjá Fredericia en gekk svo til liðs við þýska B-deildarfélagið Bergischer HC á láni eftir áramót, en Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari þýska liðsins.

Bergischer, sem var nýliði í B-deildinni, vann öruggan sigur í deildinni og tryggði sér um leið sæti í efstu deild Þýskalands á nýjan leik á nýliðnu keppnistímabili.

„Tíminn hjá Bergischer var frábær,“ sagði Arnór í samtali vð Morgunblaðið.

Naut tímans í Þýskalandi

„Við töpuðum fyrstu tveimur leikjunum mínum fyrir HM í Króatíu, Danmörku og Noregi, en svo unnum við nánast alla leikina okkar eftir HM. Við vorum svo gott sem búnir að tryggja okkur sæti í efstu deild í apríl. Það var virkilega gaman að fá að upplifa allt sem því fylgdi og ég naut þess að spila í Þýskalandi,“ sagði Arnór.

Arnór viðurkennir að hann hefði viljað gera meira á tímabilinu, bæði með Fredericia í Danmörku og með Bergischer í Þýskalandi.

„Ég verð að vera hreinskilinn með það að ég hefði viljað gera meira. Ég hefði í fyrsta lagi viljað spila meira og koma með meira að borðinu en ég ræddi við Arnór eftir tímabilið og hann var sáttur með mig.

Hann var samt sammála mér um það að hann hefði viljað sjá meira frá mér. Ég verð ekki áfram hjá Bergischer og tek slaginn með Fredericia á næstu leiktíð.“

Viðtalið við Arnór má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »