Rúnar rekinn frá Leipzig

Rúnar Sigtryggsson.
Rúnar Sigtryggsson. Ljósmynd/@DHfK_Handball

Þýska handknattleiksfélagið Leipzig hefur vikið Rúnari Sigtryggssyni úr starfi þjálfara karlaliðsins. Rúnar þjálfaði liðið frá því í nóvember árið 2022.

Eftir að hafa lyft grettistaki hjá liðinu fyrstu tvö tímabilin hallaði undan fæti á nýafstöðnu tímabili og ákvað Leipzig að tímabært væri að fá nýjan mann í brúna.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver það verður en leit stendur yfir að arftaka Rúnars.

Sonur hans Andri Már Rúnarsson leikur með Leipzig og var í lykilhlutverki á nýafstöðnu tímabili þó gengi liðsins hafi verið undir væntingum.

Leipzig hafnaði í 13. sæti í þýsku 1. deildinni, vann sér inn 21 stig og var aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
OSZAR »