Hætt með íslenska landsliðinu

Sandra Erlingsdóttir og Rut Arnfjörð Jónsdóttir faðmast eftir sigur á …
Sandra Erlingsdóttir og Rut Arnfjörð Jónsdóttir faðmast eftir sigur á Ísrael, sem reyndist síðasti landsleikur Rutar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rut Arnfjörð Jónsdóttir, ein kunnasta handknattleikskona landsins, er hætt að leika með íslenska landsliðinu. Þetta staðfesti Rut í samtali við mbl.is.

Hún er samningsbundin Haukum út næsta tímabil, til sumarsins 2026. Sagði Rut jafnframt að hún muni standa við þann samning og spila áfram með félagsliði sínu.

Rut, sem er 34 ára gömul örvhent skytta, er einn leikjahæsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins en hún lék alls 124 landsleiki og skoraði í þeim 249 mörk.

Fór Rut á alls fjögur stórmót með íslenska landsliðinu, síðast á EM 2024 í Innsbruck í Austurríki.

Lék í tólf ár sem atvinnumaður

Rut er upp­al­in í HK en hef­ur einnig leikið með KA/Þ​ór og nú Hauk­um hér heima en á Ak­ur­eyri vann hún alla bik­ara sem eru í boði á Íslandi.

Rut er sú íslenska handknattleikskona sem hefur náð hvað lengst í atvinnumennsku en hún var í tólf ár í efstu deild í Dan­mörku. Lék Rut þar með Tvis Hol­ste­bro, Es­bjerg, Randers og Midtjylland.

Varð hún til að mynda fyrst ís­lenskra kvenna til að verða dansk­ur meist­ari í hand­knatt­leik, árið 2019 með Esbjerg.

Sigraði Rut svo í Evr­ópu­keppni fé­lagsliða, EHF-bik­arn­um, með Tvis Holstebro árið 2013.

Níundi leikmaðurinn sem heltist úr lestinni

Fjöldi landsliðskvenna hefur látið staðar numið að undanförnu. Steinunn Björnsdóttir, Þórey Rósa Stefánsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Karen Knútsdóttir og Sigríður Hauksdóttir eru allar búnar að leggja skóna á hilluna.

Sunna Jónsdóttir er þá hætt að leika með landsliðinu og íhugar hvort hún spili áfram auk þess sem Perla Ruth Albertsdóttir er barnshafandi og Berglind Þorsteinsdóttir tók sér hlé til þess að jafna sig á þrálátum hnémeiðslum.

Alls hafa því níu leikmenn sem hafa verið í landsliðinu á undanförnum árum helst úr lestinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »