Handknattleiksmaðurinn Haraldur Björn Hjörleifsson er genginn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Aftureldingu eftir tveggja ára dvöl hjá Fjölni. Skrifaði hann undir tveggja ára samning.
Haraldur Björn er 21 árs gamall og leikur í stöðu vinstri skyttu.
Hann var valinn leikmaður leikmaður ársins hjá Fjölni þrátt fyrir að missa af síðari hluta nýafstaðins tímabils eftir að hafa slitið krossband í hné. Fjölni féll niður í 1. deild.
„Halli er uppalinn í Aftureldingu og er gríðarlega öflugur í bæði vörn og sókn og það verður skemmtilegt að sjá hann aftur í rauðu treyjunni!“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar.