Þjálfari Íslendinganna í veikindaleyfi eftir óhugnalegt atvik

Chrstian Berge.
Chrstian Berge. Ljósmynd/Kolstad

Christian Berge, þjálfari Íslendingaliðs Kolstad í norsku úrvalsdeildinni í handbolta, er kominn í veikindaleyfi eftir að hafa fallið í yfirlið í leik liðsins gegn Elverum á dögunum. 

Kolstad og Elverum mættust í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi norsku deildarinnar á miðvikudaginn var en Berge hneig niður í síðari hálfleik og þurfti að gera hlé á leiknum á meðan hugað var að honum.

Forráðamenn Kolstad greindu frá því eftir leikinn að þjálfarinn þjáðist af óreglulegum og hröðum hjartslætti og hefði misst stjórn á líkamanum.

Framkvæmdastjóri félagsins greindi svo frá því í vikunni að Berge væri kominn í veikindaleyfi en þeir Sigvaldi Björn Guðjónsson, Arnór Snær Óskarsson, Benedikt Gunnar Óskarsson, Sveinn Jóhannsson og Sigurjón Guðmundsson eru allir samningsbundnir Kolstad.

Berge hefur áður glímt við veikindi en sem leikmaður fékk hann krabbamein og þurfti þá að taka sér hlé frá keppni um tíma á meðan hann vann bug á því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »