McIlroy líklega úr leik

Rory McIlroy á öðrum hringnum í dag. Hann náði sér …
Rory McIlroy á öðrum hringnum í dag. Hann náði sér ekki á strik frekar en í síðustu tveimur mótum. AFP/WARREN LITTLE

Þekktustu nöfnin í golfinu um þessar mundir eru ekki þeir sem eru í efstu sætunum sem stendur á öðrum keppnisdegi Opna bandaríska meistaramótsins í golfi sem fram fer á Oakmont-vellinum í Pensylvaníuríki. 

Rory McIlroy sem sigraði á Masters í apríl er samtals á 8 höggum yfir pari. Niðurskurðarlínan er sem stendur á 7 yfir pari en eins og spáð hafði verið er Oakmont völlurinn afar erfiður við að eiga líkt og þegar Opna bandaríska mótið fór þar fram 2007 og 2016. 

Glíman við Oakmont tekur á og er hálfgerð þolraun. Scottie …
Glíman við Oakmont tekur á og er hálfgerð þolraun. Scottie Scheffler á 18. flötinni í dag. AFP/PATRICK SMITH

Efsti kylfingur heimslistans Scottie Scheffler kemst áfram og leikur um helgina en er samtals á fjórum yfir pari eftir að hafa leikið á 73 og 71 höggi. Hann þótti langlíklegastur til sigurs á mótinu og vann PGA meistaramótið í síðasta mánuði. 

Sá eftir þegar þetta er ritað er Thriston nokkur Lawrence frá S-Afríku á samtals 5 undir pari en JJ SPaun frá Bandaríkjunum er höggi á eftir. Þeir eru báðir úti á velli á öðrum hring. 

Sá efsti þeirra sem lokið hafa leik er Bandaríkjamaðurinn Sam Burns á samtals 3 undir pari. Hann hitti á frábæran hring í dag þegar hann var á fimm undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »