Íslenska frjálsíþróttalandsliðið er með góða forystu þegar 12 greinum er lokið af 20 á fyrri keppnisdeginum í 3. deild Evrópubikarkeppninnar í Maribor í Slóveníu.
Ísland hefur unnið þrjár af þessum tólf greinum og er með keppendur í einu þriggja efstu sætanna í flestum greinum en fimmtán þjóðir keppa í 3. deildinni og senda einn keppanda hver í hverja grein.
Ísland er nú með 156 stig en næstu þjóðir eru Lúxemborg með 129 stig, Bosnía með 120, Moldóva með 116 og Aserbaídsjan með 112 stig.
Eins og sagt var frá fyrr í dag vann Hilmar Örn Jónsson sleggjukast karla og Ívar Kristinn Jasonarson 400 metra grindahlaup karla.
Karen Sif Ársælsdóttir bætti síðan við þriðja sigrinum þegar hún vann stangarstökk kvenna og stökk yfir 3,55 metra.
Aníta Hinriksdóttir varð önnur í 800 metra hlaupi kvenna eftir einvígi við maltneska konu og hljóp á 2:10,52 mínútum.
Hera Christensen varð önnur í kringlukasti kvenna, kastaði 53,80 metra sem er hennar besti árangur.
Eir Chang Hlésdóttir varð þriðja í 100 metra hlaupi kvenna á sínum besta tíma, 11,69 sekúndum.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir varð þriðja í 400 metra hlaupi kvenna á 55,00 sekúndum.
Hlynur Andrésson varð sjötti í 1.500 metra hlaupi karla á 3:55,87 mínútum.
Sigursteinn Ásgeirsson varð sjöundi í kúluvarpi karla, kastaði 15,65 metra.
Átta greinum er ólokið í dag.