Komst í tvenn úrslit á heimsbikarmótinu

Hildur Maja Guðmundsdóttir við keppni í dag.
Hildur Maja Guðmundsdóttir við keppni í dag. Ljósmynd/FRÍ

Hildur Maja Guðmundsdóttir lét afar vel til sín taka í undanúrslitum á heimsbikarmótinu í fimleikum sem fram fer í Tashkent í Úsbekistan um þessar mundir.

Keppti hún á öllum áhöldum í undanúrslitum sem fóru fram í gær og í dag. Hildur Maja stóð sig með sóma og flaug á sannfærandi hátt inn í úrslitin á tvíslá og gólfi. Auk þess er hún fyrsti varamaður inn í stökkúrslitin.

Hildur Maja framkvæmdi stórkostlega tvísláaræfingu með erfiðu tvöföldu heljarstökki með beinum líkama í afstökk, sem skilaði henni 11.050 stigum.

Gólfið stóð svo sannarlega upp úr hjá Hildi Maju í dag þar sem hún framkvæmdi glæsilegar æfingar sem skiluðu henni 12.300 stigum og varð þannig fyrst inn í úrslitin.

Hildur framkvæmdi flotta sláaræfingu án stórra mistaka í dag og fékk hún 11.900 stig fyrir vikið og 11. sætið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
OSZAR »