Ísland endaði með 26 gullverðlaun

Karla­sveit Íslands í 4x100 metra fjór­sundi var á meðal þeirra …
Karla­sveit Íslands í 4x100 metra fjór­sundi var á meðal þeirra sem hlaut gullverðlaun. Ljósmynd/Sundsambandið

Ísland endaði með 26 gullverðlaun á Smáþjóðaleikunum í Andorra en keppni lauk í dag. 

Ísland hafnaði í þriðja sæti yfir flest gullverðlaun og einnig í þriðja sæti yfir flest verðlaun en þjóðin hlaut alls 75 verðlaun á mótinu. 

Kýpur hlaut flest gullverðlaun eða 36 og Lúxemborg næstflest eða 32. Alls fékk Kýpur 108 verðlaun og Lúxemborg 86. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »