Hafrún Kristjánsdóttir var kjörin formaður Vals á aðalfundi félagsins sem haldinn var 21. maí á Hlíðarenda, fyrst kvenna frá stofnun félagsins árið 1911.
Hafrún, sem er 45 ára, er prófessor og starfar sem deildarforseti íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík. Hún hefur verið virkur þátttakandi í stjórn félagsins um árabil.
Hún sat í aðalstjórn Vals á árunum 2008–2016 og hefur verið í stjórn á ný frá árinu 2023. Hafrún var jafnframt varaformaður árin 2015–2016 og 2024.
„Hafrún tekur við af Herði Gunnarssyni sem látið hefur af störfum eftir farsælt og óeigingjarnt starf,“ segir í fréttatilkynningu Valsmanna.
„Hörður hefur verið formaður Vals síðustu tvö árin og gegnt embættinu í sjö ár alls. Valur vill þakka Herði innilega fyrir framlag hans í þágu félagsins – fyrir hans einlægu trú á gildi íþróttahreyfingarinnar, fyrir sterka forystu og ómetanlegan stuðning í gegnum krefjandi tímabil,“ segir enn fremur í tilkynningunni.