Englendingar urðu í kvöld Evrópumeistarar 21-árs landsliða karla í knattspyrnu þegar þeir sigruðu Þjóðverja í úrslitaleik, 3:2, í Bratislava í Slóvakíu.
Harvey Elliott og Omari Hutchinson komu enska liðinu í 2:0 á fyrstu 24 mínútum leiksins en Nelson Weiper og Paul Nebel jöfnuðu metin með tveimur mörkum á 45. og 61. mínútu, 2:2.
Þar með þurfti að framlengja leikinn en á annari mínútu framlengingar skoraði Jon Rowe fyrir Englendinga, 3:2, og það reyndist vera sigurmarkið.