Lést í hnéaðgerð

Carlos Nuin féll sviplega frá á meðan gert var að …
Carlos Nuin féll sviplega frá á meðan gert var að hné hans. Ljósmynd/Club Atlético San Telmo

Camilo Nuin, 18 ára knattspyrnumaður frá Argentínu, lést í gær er hann var í skurðaðgerð vegna hnémeiðsla.

Nuin var leikmaður San Telmo, sem leikur í argentínsku B-deildinni, og hafði áður spilað fyrir yngri flokka stórliðanna Boca Juniors og Independiente.

Hann fór í hnéaðgerð til þess að laga liðbönd og krossbönd með það fyrir augum að koma betri stöðugleika á hnjáliðinn. Um mjög algenga aðgerð er að ræða hjá íþróttafólki.

San Telmo tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að Nuin hafi látist í skurðaðgerðinni. Þrátt fyrir það var ekki tekið nánar fram hver dánarorsökin var.

Í argentínskum miðlum er skýrt frá því að nánari upplýsingar verði veittar bráðlega í kjölfar rannsóknar á fráfalli knattspyrnumannsins unga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »