Óvænt tap Evrópumeistaranna

Leikmenn Botafogo fagna markinu.
Leikmenn Botafogo fagna markinu. AFP/Frederic J. Brown

Evrópumeistarar París SG máttu þola óvænt tap gegn brasilíska félaginu Botafogo, 1:0, í B-riðli á heimsmeistaramóti félagsliða í knattspyrnu í Pasadena í Bandaríkjunum í nótt.

Botafogo er á toppi riðilsins með sex stig en París SG er í öðru sæti með þrjú stig.

Brasilíumaðurinn Igor Jesus skoraði sigurmark Botafogo á 36. mínútu.

Öruggt hjá Atlético

Í hinum leik riðilsins mættust Atlético Madrid frá Spáni og Seattle Sounders á heimavelli Seattle í Bandaríkjunum. Leikar enduðu með 3:1-sigri Atlético.

Atlético er í þriðja sæti riðilsins með þrjú stig en Seattle er án stiga á botninum.

Staðan var 1:0 fyrir Atlético í hálfleik eftir mark frá Pablo Barrios. Axel Witsel tvöfaldaði forystu Atlético snemma í síðari hálfleik.

Á 50. mínútu minnkaði Albert Rusnák muninn fyrir Seattle. Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Barrios sitt annað mark og þriðja mark Madrídinga, 3:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »