Trent kom öllum á óvart

Trent Alexander-Arnold ásamt Florentino Pérez, forseta Real Madrid.
Trent Alexander-Arnold ásamt Florentino Pérez, forseta Real Madrid. Ljósmynd/Real Madrid

Trent Alexander-Arnold var kynntur sem nýr leikmaður Real Madrid á Spáni í dag en hann gengur til liðs við félagið frá Liverpool.

Í kynningunni kom Alexander-Arnold öllum á óvart þegar hann byrjaði að tala reiprennandi spænsku en hann er fæddur og uppalinn í Liverpool.

„Þetta gerist ekki á hverjum degi, þetta er draumur að rætast. Ég er mjög ánægður og stoltur að vera hér,“ sagði Alexander-Arnold.

Alexander-Arnold mun ferðast með Real Madrid til Bandaríkjanna en félagið mun leika á heimsmeistaramóti félagsliða sem hefst í Miami um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »