Sviss vann einstaklega öruggan sigur á Bandaríkjunum, 4:0, þegar liðin áttust við í vináttulandsleik karla í knattspyrnu í Nashville í Tennessee-ríki í nótt.
Öll mörkin komu í fyrri hálfleik á 23 mínútna kafla en þau skoruðu Dan Ndoye, Matthias Aebischer, Breel Embolo og Johan Manzambi.
Bandaríkin munu halda HM 2026 ásamt Mexíkó og Kanada næsta sumar og undirbúningur gestgjafanna því ekki að ganga sérlega vel.
Mexíkó mætti Tyrklandi í vináttulandsleik í Norður-Karólínuríki og vann 1:0 með marki Orbelin Pineda.
Þriðju gestgjafarnir, Kanada, léku einnig vináttulandsleik í Toronto í nótt gegn Fílabeinsströndinni.
Leiknum lauk með markalausu jafntefli en þá var gripið til vítaspyrnukeppni, þar sem Fílabeinsströndin hafði betur, 5:4.