Danska karlalandsliðið í knattspyrnu lék á als oddi í Óðinsvéum í kvöld þegar það vann stórsigur á Litáen í vináttulandsleik, 5:0.
Úrslitin voru nánast ráðin eftir rúman hálftíma en eftir að Mika Biereth, Christian Eriksen og Kasper Dolberg skoruðu þrjú mörk á ellefu mínútna kafla var var Litáinn Edgaras Utkus rekinn af velli.
Manni fleiri í 60 mínútur bættu Danir við tveimur mörkum í síðari hálfleik og þar voru á ferð Rasmus Kristensen og Anders Dreyer.
Eriksen, Biereth og Dreyer voru líka með sína stoðsendinguna hver.