Króatíski knattspyrnumaðurinn Luka Modric er nálægt því að ganga til liðs við AC Milan í ítölsku A-deildinni.
Real Madrid tilkynnti í síðasta mánuði að Modric væri á förum eftir 13 ár hjá félaginu en samningur hans rennur út í sumar. Modric mun þó leika með félaginu á HM félagsliða sem hefst 15. júní.
Igli Tare, nýi íþróttastjóri AC Milan, hefur ferðast til Króatíu í von um að sannfæra Modric um að ganga í raðir stórveldisins.