Leikmenn Íslendingaliðsins féllu á lyfjaprófi

Ekki er búið að opinbera hvaða leikmenn féllu á lyfjaprófi.
Ekki er búið að opinbera hvaða leikmenn féllu á lyfjaprófi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Átta leikmenn Vålerenga og Lilleström í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu féllu á lyfjaprófi á dögunum.

Ekki hefur verið opinberað hvaða leikmenn féllu á lyfjaprófi en landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir leikur með Vålerenga.

Lyfjapróf fór fram eftir leik liðanna í lok apríl þar sem Vålerenga hafði betur, 2:0.

Ólöglega efnið DMBA fannst í sýnum hjá átta leikmönnum og hefur einn leikmaður verið kærður fyrir ólöglega lyfjanotkun en magn DMBA í sýni hennar var yfir mörkum.

„Við erum í áfalli yfir þessu öllu saman,“ sagði Olau Tvedten, leikmaður Vålerenga, í viðtali við norska ríkisútvarpið.

„Ég held að allir viti að það er mjög sérstakt að vera föst í svona kringumstæðum. Það eru örugglega ekki margir sem hafa verið í sömu aðstæðum. Við trúum að þetta muni fara vel,“ sagði Tvedten.

Leikmennirnir sem féllu á lyfjaprófinu fóru aftur í próf 24. maí og fannst ekkert í þeirra sýnum. Þetta staðfesti norska lyfjaeftirlitið við norska ríkisútvarpið.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »