Hinn 19 ára gamli Désiré Doué fór gjörsamlega á kostum þegar París SG varð Evrópumeistari eftir einstaklega sannfærandi sigur á Inter Mílanó, 5:0, í úrslitaleiknum í München í kvöld.
Doué skoraði annað og þriðja mark Parísarliðsins og fór af velli stuttu eftir seinna markið.
Doué gekk í raðir París SG frá uppeldisfélagi sínu Rennes fyrir nýliðið tímabil. Hann var í aukahlutverki hjá liðinu í byrjun tímabilsins en hefur orðið að lykilmanni síðustu mánuði.
Hann er afskaplega flinkur kantmaður sem hefur skorað mikilvæg mörk fyrir París á tímabilinu, meðal annars gegn Aston Villa í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar þegar hann jafnaði metin í 1:1 í París með snilldarskoti.
Þetta var magnað tímabil fyrir Frakkann en hann vann þrennuna með Parísarliðinu og spilaði sinn fyrsta A-landsleik gegn Króatíu í mars.