Erfitt hjá Elísabetu gegn heimsmeisturunum

Elísabet Gunnarsdóttir fyrir leik Belgíu gegn Spáni í kvöld.
Elísabet Gunnarsdóttir fyrir leik Belgíu gegn Spáni í kvöld. AFP/John Thys

Belgía, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar, mátti þola stórt tap fyrir heimsmeisturum Spánar, 1:5, í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildar kvenna í knattspyrnu á heimavelli í kvöld.

Belgía er eftir tapið áfram á botni riðilsins en getur ennþá náð þriðja sætinu af Portúgal og þar með sæti í umspili um að halda sætinu í A-deild með því að vinna Portúgal á útivelli á þriðjudaginn.

Aðeins eitt stig skilur liðin að og því nægir Portúgal jafntefli til þess að tryggja þriðja sætið.

Spánn var 1:0 yfir í hálfleik, bætti svo í þegar leið á síðari hálfleikinn og komst í 5:0 áður en Belgía skoraði sárabótamark.

Frakkar fóru illa með Sviss

Frakkland vann öruggan sigur á Sviss, 4:0, í 2. riðli A-deildarinnar, riðli Íslands, á heimavelli í kvöld.

Frakkar voru þegar búnir að vinna riðilinn og eru með fullt hús stiga en Noregur, Ísland og Sviss berjast um að halda sæti sínu í A-deild.

Ísland fær Frakkland í heimsókn á Laugardalsvöll og Sviss mætir Noregi á heimavelli í lokaumferðinni á þriðjudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »