Fékk glerflösku í höfuðið: „Þetta er skandall“

Leikmenn Rosenborg fagna seinna marki liðsins í gærkvöld.
Leikmenn Rosenborg fagna seinna marki liðsins í gærkvöld. Ljósmynd/Rosenborg

Allt varð vitlaust í leik Fredrikstad og Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í knattspyru í gærkvöld er Ole Selnæs, leikmaður Rosenborg, fékk glerflösku í höfuðið úr stúkunni.

Rosenborg vann leikinn 2:0 eftir mörk frá Ole Christian Sæter og Marius Sivertsen Broholm. Í uppbótartíma þegar staðan var 2:0 fyrir Rosenborg fékk Selnæs glerflösku í höfuðið.

„Það er búið að kasta alls konar hlutum úr stúkunni. Þetta er skandall,“ sagði Jesper Mathisen, sparkspekingur á TV2.

„Að það séu svona vitleysingar í stúkunni í norskum fótbolta er bara sorglegt. Glerflöskum er kastað á Selnæs. Þetta mun hafa stórar afleiðingar, þú getur ekki haft svona fólk í stúkunni,“ bætti Mathisen við.

Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á fyrir Rosenborg á 62. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »