Chelsea er Sambandsdeildarmeistari eftir sigur á Real Betis frá Spáni, 4:1, í úrslitaleik liðanna í Wroclaw í Póllandi í kvöld.
Real Betis var betri aðilinn í fyrri hálfleik og kom Abde Ezzazouli liðinu yfir á níundu mínútu.
Í seinni hálfleik setti Chelsea hins vegar í annan gír og Enzo Fernández jafnaði metin á 65. mínútu. Fimm mínútum síðar kom Nicolas Jackson Chelsea yfir, 2:1, en Cole Palmer lagði bæði mörk upp með glæsibrag.
Jadon Sancho bætti við þriðja marki Chelsea og Moises Caicedo því fjórða undir lok leiks.
Þetta var fjórða ár Sambandsdeildarinnar en Roma vann fyrsta árið, West Ham annað, Olympiacos þriðja og loks Chelsea núna.
Þá var Víkingur úr Reykjavík með í keppninni í ár og komst í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum en tapaði fyrir Panathinaikos. Breiðablik var þá fyrsta íslenska liðið til að komast í riðla- eða deildarkeppni í Evrópukeppni með því að spila í Sambandsdeildinni haustið 2023.