Enski knattspyrnumarkvörðurinn Mary Earps hefur óvænt lagt landsliðshanskana á hilluna rétt fyrir Evrópumótið í Sviss.
Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands, tilkynnti fyrr á árinu að Hannah Hampton, markvörður Chelsea, væri nýr aðalmarkvörður enska landsliðsins.
Earps, sem er 32 ára, spilaði stórt hlutverk er England varð Evrópumeistari árið 2022 á heimavelli. Hún spilaði einnig alla leiki á HM 2023 er England fór alla leið í úrslitaleikinn.
Í dag leikur Earps með París SG í Frakklandi en fyrir það varði hún mark Manchester United í fimm ár.