Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, bað enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur afsökunar á því að hafa ekki getað veitt öllum leikmönnum karlaliðsins verðlaunapeninga eftir að það vann Evrópudeildina í gærkvöldi.
Fyrirliðinn Son Heung-Min, varafyrirliðinn Cristian Romero og miðjumaðurinn Rodrigo Bentancur fengu ekki verðlaunapening um hálsinn áður en Son lyfti bikarnum í fögnuði Tottenham.
„Okkur til mikillar óánægju vorum við ekki með nægilega marga verðlaunapeninga tiltæka á sviðinu þegar bikarafhendingin fór fram vegna óvænts fjölda leikmanna, þar sem fleiri liðsmenn, þar á meðal meiddir leikmenn, tóku þátt í athöfninni en reiknað var með.
Verðlaunapeningunum sem vantaði var tafarlaust komið til sigurliðsins í búningsklefa þess auk þess sem innilegri afsökunarbeiðni var komið á framfæri vegna þessarar yfirsjónar,“ sagði í tilkynningu frá UEFA.