Fyrirliði United til Sádi-Arabíu?

Bruno Fernandes var svekktur eftir leikinn í gær.
Bruno Fernandes var svekktur eftir leikinn í gær. AFP/Cesar Manso

Al Hilal frá Sádi-Arabíu hefur mikinn áhuga á að fá portúgalska miðjumanninn Bruno Fernandes frá Manchester United fyrir HM félagsliða í fótbolta.

Heimsmeistaramótið hefst í næsta mánuði og verður félagaskiptagluggi opinn frá 1. júní og til 10. júní fyrir félög sem eru með þátttökurétt á HM.

Ruben Neves, Aleksandar Mitrovic og Khalidou Koulibaly, sem allir léku í ensku úrvalsdeildinni, leika með Al Hilal sem er sigursælasta félag Sádi-Arabíu frá upphafi.

Fernandes sagði sjálfur í viðtali eftir tap United gegn Tottenham í úrslitum Evrópudeildarinnar að hann myndi sýna því skilning ef félagið vildi selja hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »